Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out), verður haldið í 24. skipti á Nesvellinum, mánudaginn 3. ágúst næstkomandi. Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks.
Í fyrsta skipti í sögu mótsins hefur ekki náðst að fá beinan styrktaraðila að mótinu og má rekja það til ástands í þjóðfélaginu undanfarna mánuði. Stjórn klúbbsins hefur tekið þá ákvörðun að halda mótið engu að síður og þá eingöngu í nafni NESKLÚBBSINS. Þannig verður tekið á móti frjálsum framlögum frá félagsmönnum sem og öllum kylfingum, öðrum landsmönnum og fyrirtækjum sem vilja styrkja COVID deild Landspítala Íslands.
Einvígið í ár verður þannig leikið í þágu VONAR. VON er félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar E6 á Landspítalanum í Fossvogi. Félagið var stofnað af hjúkrunarfræðingum gjörgæsludeildarinnar og allt starfsfólk deildarinnar tekur þátt í starfsemi félagsins. Hornsteinn að verkum VONAR er að styðja og styrkja skjólstæðinga deildarinnar og þar ber fremst að nefna aðstandendaherbergi deildarinnar. Öll framlög munu renna óskert til VONAR og verða upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja VON í tengslum við EINVÍGIÐ Á NESINU 2020 birtar hér á heimasíðunni og víðar í næstu viku.
Einvígið sjálft verður með sama sniði og síðastliðið ár. Þannig verður enginn höggleikur um morguninn heldur mæta kylfingarnir beint í Einvígið sjálft (shoot-out) sem hefst klukkan 13.00. Þar dettur eins og áður einn kylfingur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 9. braut. Sjónvarpsstöð Símans mun taka mót og sjónvarpa því síðar í sömu viku og verður Logi Bergmann á sínum stað eins og öll árin.
ATHUGIÐ: VEGNA NÝÚTGEFINNA FYRIRMÆLA YFIRVALDA VERÐA ÞVÍ MIÐUR ENGIR ÁHORFENDUR HEIMILAÐIR Á MEÐAN VIÐBURÐURINN FER FRAM.
Keppendur 2020
Andri Þór Björnsson
Axel Bóasson
Björgvin Sigurbergsson
Bjarki Pétursson
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Haraldur Franklín Magnús
Hákon Örn Magnússon
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafur Björn Loftsson
Sigurvegarar frá upphafi:
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson
2016 Oddur Óli Jónasson
2017 Kristján Þór Einarsson
2018 Ragnhildur Sigurðardóttir
2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson