Bændaglíman var haldin í dag þrátt fyrir óvissuástand og þá að sjálfsögðu í takti við sóttvarnatakmarkanir eins og klúbburinn hefur reynt að gera í allt sumar.
Mótið fór fram í fínu veðri, örlítið napurt en allar aðstæður í raun eins og best verður á kosið svona miðað við október mánuð á Íslandi og útsýnið var geggjað. Skipt var í tvö lið og bændur voru hjónin Fjóla Guðrún, formaður kvennanefndar og Haraldur Jóhannsson. Það var fullt í mótið og þátttakendur skemmtu sér vel – þetta var kalt en gaman og úrslitin skipta engu máli.
Í ljósi væntanlegra samkonutakmarkana munum við nú loka golfskálanum alveg næstu daga. Opið verður á salerni frá kl. 09.00 og frameftir degi.
Takk fyrir merkilegt en gott golfsumar. Gleymum ekki að þann 3. maí síðastliðinn var ekki vitað hvort leika mætti golf þetta sumar á Íslandi sökum Covid. Þetta hefur tekist með allskyns útfærslum og hefur verið reynt að framfylgja umfram allt öllum sóttvarnarreglum eins og við best gátum.
Allar upplýsingar um framhaldið á bæði vellinum, skálanum og inniaðstöðunni munu birtast hér á heimasíðunni á næstu dögum.