Eins og áður hefur komið fram voru mótin í októbermótaröðinni í umsjá foreldraráðs Nesklúbbsins og rennur allur ágóði mótanna til styrktar æfingaferðar krakka- og unglinga klúbbsins næstkomandi vor. Upphaflega stóð til að halda fimm mót, þ.e. alla sunnudaga í október. Vegna veðurs þurfti því miður að aflýsa síðasta mótinu og voru það því fjögur mót sem töldu til stigameistara mótaraðarinnar. Stigagjöfin í hverju móti var eftirfarandi:
1. sæti gaf 5 stig
2. sæti gaf 4 stig
3. sæti gaf 3 stig
4. sæti gaf 2 stig
5. sæti gaf 1 stig
Úrslit urðu svohljóðandi að jafnar í fyrsta til öðru sæti voru þær Helga Matthildur Jónsdóttir og Helga Kristín Einarsdóttir með 7 stig. Var þá reiknað út hvor þeirra fékk síðar fleiri stig og var það því að lokum Helga Matthildur sem stóð uppi sem sigurvegari og því stigameistari Okóbermótaraðarinnar 2011.