Hreinsunardeginum frestað um viku

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Nú styttist heldur betur í golftímabilið og eru margir farnir að horfa til þess hvenær völlurinn opnar. Vorið hefur þó því miður ekki alveg verið að vinna með okkur þrátt fyrir góðviðrisdagana undanfarið.  Vegna ástand vallarins hefur því verið ákveðið að fresta hreinsunardeginum um viku eða til laugardagsins 11. maí.  Við hvetjum félagsmenn til að taka daginn frá þar sem næg verkefni liggja fyrir og því von okkar að það verði góð mæting.  Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur.

Vallarnefnd