Kæru félagar,
Næstu helgi mun Nesklúbburinn halda tveggja daga golfmót í samstarfi við Golfsamband Íslands. Mótið er hluti af mótaröðinni GOLF14 sem eins og nafnið gefur til kynna er haldið fyrir börn 14 ára og yngri hvaðanæva af landinu. Það ber að líta á það sem bæði heiður og um leið mikla viðurkenningu á barnastarfi klúbbsins þegar Golfsambandið leitar til okkar um að halda slíkt mót. Skráningu í mótið lauk í gær og er skemst frá því að segja að nýtt Íslandsmet var slegið þar sem 155 börn eru nú skráð til leiks. Það hefur aldrei áður gerst í slíku barnamóti áður þannig að það verður því heldur betur líf og fjör á Nesvellinum um helgina.
Eins og gefur að skilja er völlurinn því lokaður á bæði laugardag og sunnudag fyrir mótið. Þegar endanlegir rástímar verða tilbúnir munum við engu að síður opna völlinn eftir að mótinu lýkur báða daga þannig að fylgist með.
Eins og reglur Golfsambandsins kveða á um að þá geta félagar þess klúbbs sem heldur GSÍ mót fengið 50% afslátt af vallargjöldum annarra klúbba á meðan mótinu stendur. Þannig gefst þér nú tækifæri á að spila alla aðra velli á landinu á slíkum kjörum. Það eina sem þú þarft að taka fram við bókun á rástíma er að þið séuð í Nesklúbbnum og þar er haldið GSÍ mót um helgina.
Mótanefnd

