Bændaglíman – lokamót sumarsins fyrir alla NK félaga

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Þá er komið að lokamóti Nesklúbbsins þetta sumarið sem verður haldið laugardaginn 26. september.

Mótið er fyrir alla félagsmenn klúbbsins.  Tveir saman í liði og verða leiknar 18 holur eftir Texas-scramble fyrirkomulagi, punktakeppni með forgjöf.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og nándarverðlaun á par 3 brautum.

Forgjöfin reiknast þannig að í samanlagða vallarforgjöf er deilt í með fjórum.  Þó verður forgjöfin aldrei hærri en hjá forgjafarlægri kylfingnum.

Ræst út á öllum teigum kl.14:00 og að móti loknu verður svo boðið upp á kvöldmat hjá Mario.

Mætum öll og kveðjum sumarið saman.  Skráning er hafin á Golfbox og lýkur fimmtudaginn 24. september kl. 14:00.  Hægt er að skrá sig með því að smella hér.  Athugið að það þarf að skrá báða aðila samtímis.

Mótsgjald kr. 6.000 pr. mann