Kæru félagar,
Þá er komið að lokamóti Nesklúbbsins þetta sumarið sem verður haldið laugardaginn 26. september.
Mótið er fyrir alla félagsmenn klúbbsins. Tveir saman í liði og verða leiknar 18 holur eftir Texas-scramble fyrirkomulagi, punktakeppni með forgjöf.
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og nándarverðlaun á par 3 brautum.
Forgjöfin reiknast þannig að í samanlagða vallarforgjöf er deilt í með fjórum. Þó verður forgjöfin aldrei hærri en hjá forgjafarlægri kylfingnum.
Ræst út á öllum teigum kl.14:00 og að móti loknu verður svo boðið upp á kvöldmat hjá Mario.
Mætum öll og kveðjum sumarið saman. Skráning er hafin á Golfbox og lýkur fimmtudaginn 24. september kl. 14:00. Hægt er að skrá sig með því að smella hér. Athugið að það þarf að skrá báða aðila samtímis.
Mótsgjald kr. 6.000 pr. mann
