Skoðanakönnun NK – við viljum heyra frá þér

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Eins og fram kom í síðasta formannspistli að þá ætlar stjórn klúbbsins að senda út könnun um ýmis málefni er tengjast klúbbnum til að fá skýrari mynd af því hvar við stöndum og hvert skal stefna.  Slík könnun hefur verið framkvæmd reglulega undanfarin ár af hálfu stjórnar.

Nesklúbburinn er íþróttafélag sem samanstendur af fjölbreyttum hópi félagsmanna með misjafnar þarfir, væntingar og áherslur. Það er því mikilvægt að heyra sjónarmið sem flestra svo stjórn klúbbsins hafi sem besta yfirsýn yfir viðhorf félagsmanna og geti tekið tillit til þeirra við ákvarðanatökur.

Gallup hefur verið falið að framkvæma þessa könnun og verður hún send út á allra næstu dögum.  Við framkvæmd könnunarinnar verða notuð netföng félagsmanna sem eru skráð inni á Golfbox.  Öllum reglum Gallup um framkvæmd slíkra kannana verður framfylgt.  Þar á meðal sú regla að könnunin verður ekki send á þá einstaklinga sem eru „bannmerktir“ í þjóðskrá.  „Bannmerkt“ þýðir að viðkomandi afþakkar eða vill öllu jafna ekki taka þátt í slíkum könnunum.  Viðkomandi einstaklingar geta haft samband á skrifstofu Nesklúbbsins hafi þeir hug á að taka þátt í þessari könnun með því að senda tölvupóst á netfangið: nkgolf@nkgolf.is með efnislínunni „Könnun 2026“ og tilgreina í tölvupóstinum: Nafn, kennitölu og netfang.

Þín skoðun skiptir máli og við hvetjum þig eindregið til þátttöku.

Stjórn Nesklúbbsins