Bara félagsmenn og rástímaskráning

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Aukaaðild, Póstlistar Full aðild

Kæru félagsmenn,

Veðurblíðan virðist engan enda ætla að taka og á meðan ekki frystir svo um munar ætlum við að reyna að hafa völlinn opinn.  Það er þó háð því að umgengnin sé jafn góð eins og hún hefur verið og t.a.m. er algjört lykilatriði að gera við boltaför á flötum.  Við viljum vekja sérstaka athygli á að það er búið að færa teigmerkin út af bæði 2. og 4. teig.  Vinsamlegast virðið það og sláið ekki af sumarteigunum á þeim brautum.

Athugið að vellinum hefur nú verið lokað fyrir alla aðra en félagsmenn og eiga nú engir nema kylfingar með félagsnúmer í Nesklúbbnum að geta skráð sig á rástíma.  Og talandi um rástíma að þá skiptir það ennþá máli að við skráum okkur á rástíma.  Það gefur okkur frekari yfirsýn hvað varðar bæði talningu og álag um völlinn sem er mikilvægt þegar verið er að meta hvort það skuli hafa áfram í sumarbúningi eður ei.  Þannig væri til dæmis óþarfi að hafa völlinn opinn inn á sumarflatir ef eftirspurnin er lítil sem engin.

Þannig að skilaboðin eru: Bara félagsmenn – skráum okkur á rástíma og göngum vel um völlinn okkar.

Góða skemmtun,
Vallarnefnd

GOLFKLÚBBUR NESS - 170 SELTJARNARNES - SÍMI: 561 1930 - NETFANG: NKGOLF@NKGOLF.IS