Ársskýrsla Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2026

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Eins og fram hefur komið verður Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2026 haldinn í Hátíðarsal Gróttu, Suðurströnd 8, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 19.30.

Samkvæmt 3. lið 15.gr. laga félagsins verða endurskoðaðir reikningar bornir undir fundinn.  Nú hefur Ársskýrslan í heild, þ.m.t. ársreikningurinn, verið birt á heimasíðu klúbbsins undir slóðinni: https://nkgolf.is/umnk/skjol/arsreikningar/ eða með því að smella hér.

Rekstraráætlun fyrir árið 2027, sú er samþykkt verður á aðalfundinum á þriðjudaginn nk., verður svo í framhaldi af fundinum birt með ársreikningnum á bls. 11 eins og getið er á um í efnisyfirliti ársreikningsins.  Sú áætlun sem stjórn félagsins mun leggja fyrir fundinn mun taka mið af 2,5% hækkun á félagsgjöldum fyrir árið 2027.

Í skýrslunni má meðal annars sjá skýrslu formanns og nefnda þar sem ýmis fróðleikur og upplýsingar tengdar starfinu á árinu eru teknar saman í máli og myndum.

Forsíðumyndin í ár er tekin af Sigrúnu Guðmundsdóttur, félagskonu í klúbbnum og henni og öðrum félagsmönnum sem sendu okkur inn myndir til að birta í skýrslunni færum við okkar bestu þakkir.  Eins viljum við sérstaklega þakka Erling Sigurðssyni sem annaðist alla uppsetningu og frágang.

Við hvetjum þig til þess að renna í gegnum skýrsluna og minnum á aðalfundinn á þriðjudaginn þar sem fundargestir eru hvattir til að mæta tímanlega þar sem dagskrá fundarins er viðamikil eins og fram kom í fundarboðinu. 

Stjórnin