Vegna skoðanakönnunar Gallup sem verið er að framkvæma um þessar mundir fyrir stjórn klúbbsins viljum við koma eftirfarandi á framfæri.
- Í dag fer út síðasta áminning frá Gallup vegna skoðanakönnunarinnar þannig að það er síðasta tækifærið til að svara
- Ef einhver hefur ekki fengið könnunina senda en vill fá hana senda, látið vita á nkgolf@nkgolf.is með fyrirsögninni „skoðunarkönnun 2026“, nafn, kennitölu og netfangið sem þú vilt fá hana senda á.
- Einhverjir hafa fengið könnunina í „ruslhólfið“ þannig að endilega athugið hjá ykkur hvort hún kunni að liggja þar ef þið hafið ekki séð hana
Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt – þín skoðun skiptir máli
Stjórn Nesklúbbsins
