Opna Hótel Sögu mótið fór fram á Nesvellinum á laugardaginn. þrátt fyrir dálitla rigningu um morguninn var gott veður og aðstæður allar hinar bestu. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í bæði höggleik og punktakeppni ásamt nándarverðlaunum á par 3 brautum. Ótvíræður sigurvegari mótsins var Nökkvi Gunnarsson en hann lék hringinn á 65 höggum, fékk 11 pör og 7 fugla. Frábær hringur sem skilaði honum efsta sætinu í bæði höggleik og punktakeppninni. Helstu úrslit mótsins urðu annars eftirfarandi:
Höggleikur:
1. Nökkvi Gunnarsson, 65 högg
2. Steinn Baugur Gunnarsson, 70 högg
3. Halldór Ingólfsson, 74 högg
Punktakeppni:
1. Nökkvi Gunnarsson, 41 punktur
2. Haraldur Haraldsson, 40 punktar
3. Ásgeir Bjarnason, 39 punktar
Nándarverðlaun:
2./11. braut: Unnar Geir Hólmarsson, 13cm frá holu
5./14. braut: Eyþór Kristjánsson, 1,50m frá holu