Einvígið á Nesinu verður haldið 1. ágúst

Nesklúbburinn

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 20. skipti á Nesvellinum mánudaginn 1. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið  (shoot-out).  Einn kylfingur fellur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu. 

DHL á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða.  Í ár er það eins og kom fram ofar Umhyggja sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. 

Þátttakendur 2016

Alfreð Brynjar Kristinsson

GKG

Klúbbmeistari GKG 2016

Arnór Ingi Finnbjörnsson

GR

Klúbbmeistari GR 2016

Aron Snær Júlíusson

GKG

Sigurvegari Einvígisins 2015

Björgvin Sigurbergsson

GK

Margfaldur Íslandsmeistari

Hlynur Geir Hjartarson

GOS

Klúbbmeistari GOS 2016

Karlotta Einarsdóttir

NK

Klúbbmeistari NK 2016

Kristján Þór Einarsson

GM

Klúbbmeistari GM 2016

Oddur Óli Jónasson

NK

Klúbbmeistari NK 2016

Ragnhildur Sigurðardóttir

GR

Klúbbmeistari GR 2016

Úlfar Jónsson

GKG

Kylfingur 20. aldarinnar

Sigurvegarar frá upphafi

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015      Aron Snær Júlíusson