Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæri félagi í Nesklúbbnum,

Minnum á að í dag er síðasti dagur til að rástafa greiðsludreifingu á félagsgjöldunum 2023.  Þeir sem ekki verða búnir að ráðstafa sínu greiðslufyrirkomulagi eftir daginn í dag munu fá senda 4 greiðsluseðla (jan,feb,mar og apr) í heimabanka.

Gjaldskrá má sjá á heimasíðunni undir um Nesklúbbinn/gjaldskrá (smella hér)

Leiðbeiningar vegna ástöfun félagsgjalda á Sportabler 2023

Inni á heimasíðu klúbbsins undir Um Nesklúbbinn/gjaldskrá má einnig sjá slóð fyrir almennar leiðbeiningar um Sportabler.

Í boði er að fá greiðsluseðla í heimabanka eða greiða með greiðslukorti og hægt er að skipta greiðslum niður í allt að 8 skipti.  ATH: óháð því hvaða leið þú valdir í fyrra þá þarftu að fara í gegnum ferlið aftur fyrir næsta tímabil – annars færðu fjóra greiðsluseðla eins og áður sagði. 

Fyrsti gjalddagi allra greiðsluleiða er 1. janúar.

Ákveði félagsmaður að hætta í klúbbnum væri heppilegasti tíminn til þess að láta vita af því núna en þó eigi síðar en 15. janúar.  Berist úrsögn eftir þann tíma fást félagsgjöld ekki endurgreidd nema gegn framvísun læknisvottorðs.  Úrsögn skal tilkynna á netfangið: nkgolf@nkgolf.is

Stjórnin