Skráningu í Meistaramótið 2026 senn að ljúka

NesklúbburinnAlmennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Lokadagur skráningar í Meistaramótið 2026 er eftir tvo daga, þ.e. miðvikudaginn 1. júlí, kl. 22.00.  Eftir þann tíma verður ekki hægt að skrá sig nema mögulega það hafi ekki áhrif á fjölda ráshópa í hverjum flokki – það vill enginn taka þá áhættu.  Það stefnir í góða þátttöku og samningaviðræður við veðurguðina ganga vel.  Við hvetjum því alla sem ætla að taka þátt að skrá sig sem fyrst svo enginn gleymi sér.  Hægt er að skrá sig með því að smella hér

Mótsstjórn Meistaramótsins 2026