Aðalfundur Nesklúbbsins 2019

Nesklúbburinn

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2019 verður haldinn í golfskála félagsins fimmtudaginn 28. nóvember næstkomandi kl. 19.30.  Dagskrá fundarins verður nánar auglýst þegar nær dregur.

Samkvæmt lögum félagsins skal framboðum til stjórnar skilað til kjörnefndar eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.  Hægt er að tilkynna framboð til kjörnefndar með því að senda tölvupóst á netfangið nkgolf@nkgolf.is eða í síma framkvæmdastjóra, 860-1358 sem mun þá koma framboðinu áleiðis til kjörnefndar.  Síðasti dagur til þess að tilkynna framboð er fimmtudaginn 14. nóvember.  Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma: 860-1358 eða með tölvupósti á netfangið haukur@nkgolf.is.