Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins fyrir rekstrarárið 2026 fór fram í gær, þriðjudaginn 24. nóvember í hátíðarsal Gróttu við Suðurströnd.
Helstu dagskrárliðir voru þeir að Þorsteinn Guðjónsson formaður klúbbsins gerði grein fyrir skýrslu stjórnar og þá gerði Guðrún Valdimarsdóttir, gjaldkeri klúbbsins fyrir reikningum. Reikningarnir voru svo lagðir fram til atkvæðagreiðslu af fundarstjóra og voru þeir samþykktir samhljóða.
Samkvæmt 9. grein í lögum félagsins skal á aðalfundi kosið um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára. Fyrir þennan aðalfund bárust til kjörnefndar þrjú framboð innan tilskyldra tímamarka skv. lögum félagsins. Þau Heimir Örn Herbertsson, Jóhann Karl Þórisson og Þórkatla Aðalsteinsdóttir gáfu öll kost á sér til stjórnarsetu næstu tveggja ára. Þar sem engin önnur framboð bárust voru þau réttkjörin til stjórnarsetu til næstu tveggja ára.
Þá gaf Þorsteinn Guðjónsson áfram kost á sér til embættis formanns. Ekki bárust fleiri framboð og Þorsteinn því réttkjörinn formaður Nesklúbbsins næsta starfsár. Stjórn Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins fyrir rekstrarárið 2027 verður því þannig skipuð. Þorsteinn Guðjónsson, formaður og aðrir í stjórn í stafrófsröð: Ásgeir Bjarnason, Elsa Nielsen, Guðrún Valdimarsdóttir, Heimir Örn Herbertsson, Jóhann Karl Þórisson og Þórkatla Aðalsteinsdóttir.
Frekari fréttir af fundinum verða uppfærðar þegar öll gögn liggja fyrir, þ.m.t. ákveðin félagsgjöld fyrir árið 2027 sem tóku breytingum á fundinum frá áætlun stjórnar og þar af leiðandi líka rekstraráætlun fyrir næsta ár líka.
Stjórnin

