Annað Kvennamót NK-kvenna fer fram á morgun, þriðjudaginn 31. maí. Formið er það sama og áður, bara mæta og skrá sig í kassanum góða í veitingasölunni áður en leikur hefst. Mótin eru góður vettvangur fyrir bæði þær sem eru að stíga sín fyrstu skref í þátttöku í mótum sem og lengra komnar sem vilja lækka forgjöfina.
Reglur fyrir þriðjudagsmót NK- kvenna:
1. Leikið er eftir punktafyrirkomulagi
2. Heimilt er að byrja að spila: 9 holur á milli kl. 09.00 og 20.00 og 18 holur á milli kl. 09.00 og 18.00.
3. Skrá verður þátttöku og greiða þátttökugjald áður en leikur hefst – Skráning í mót er á þátttökublaði í kvennanefndarkassanum í veitingasölu og þátttökugjald 1.000 kr. er greitt í umslag í kassanum
4. Ef 18 holur hafa verið spilaðar er ekki heimilt að skila inn skorkorti fyrir 9 holur
5. Ef leiknar eru 18 holur skal spila þær eins og í öðrum mótum og ekki heimilt að taka langt hlé á milli hringja
6. Leikið skal af teigum 47
7. Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti fyrir flesta punkta á 18 holum og 9 holum.
8. Hámarksforgjöf í mótunum er gefin 36.
Að öðru leyti gilda almennir keppnisskilmálar Nesklúbbsins.
Mætum allar og höfum gaman af,
Kvennanefndin
Innanfélagsmót NK-kvenna 2016
1. 17. maí – þriðjudagsmót I
2. 31. maí – þriðjudagsmót II
3. 7. júní – Einnarkylfukeppni kvenna
4. 21. júní – þriðjudagsmót III
5. 12. júlí – Þriðjudagsmót IV
6. 16. júlí – OPNA FORVAL KVENNAMÓTIÐ
7. 26. júlí – Þriðjudagsmót V
8. 9. ágúst – Þriðjudagsmót VI
9. 28. ágúst – LOKAMÓT NK-KVENNA