OPNA LAUNDRAMAT Á LAUGARDAGINN – skráning í gangi

Nesklúbburinn

THE LAUNDROMAT CAFE OPEN, eitt glæsilegasta mót sem haldið er á Nesvellinum verður haldið laugardaginn 4. júní.  Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik og punktakeppni ásamt nándarverðlaunum á par 3 brautum. 

Hámarksforgjöf gefin: Karlar: 24 og Konur: 28
 

VERÐLAUN:

Punktakeppni:

1. sæti: Gjafabréf frá WOW AIR að verðmæti kr. 50.000
2. sæti: Gjafabréf frá WOW AIR að verðmæti kr. 40.000
3. sæti: Gjafabréf frá WOW AIR að verðmæti kr. 30.000

Höggleikur:


1. sæti: Gjafabréf frá WOW AIR að verðmæti kr. 50.000
2. sæti: Gjafabréf frá WOW AIR að verðmæti kr. 40.000
3. sæti: Gjafabréf frá WOW AIR að verðmæti kr. 30.000

Nándarverðlaun:

2./11. braut: Gjafabréf frá Bryggjan brugghús að verðmæti kr. 15.000
5./14. braut: Gjafabréf frá Bryggjan brugghús að verðmæti kr. 15.000

Teiggjöf: Gjafabréf frá THE LAUNDROMAT CAFÉ að verðmæti kr. 2.500 og handklæði frá THE LANDROMAT CAFÉ

Sami keppandi getur ekki unnið til verðlauna í bæði höggleik og punktakeppni.  Ef keppandi er í sama sæti í báðum flokkum fær viðkomandi verðlaun í höggleik.  Ef keppendur eru jafnir í öðru og/eða þriðja sæti í höggleik ráðast úrslit af seinni 9 holum.  Ef enn er jafnt þá af síðustu 6 holum, síðan síðustu 3, þá síðustu holu og að lokum hlutkesti.  Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti í höggleik skulu úrslit ráðast í bráðabana.

Skráning hefst föstudaginn 27. maí kl. 08.00 og lýkur föstudaginn 3. júní kl. 17.00

Mótsgjald kr. 4.900