Annar kynningarfundurinn á mánudaginn

Nesklúbburinn

Fyrsti kynningarfundurinn heppnaðist ákaflega vel þar sem vel á sjötta tug félagsmanna mættu.  Annar fundurinn verður haldinn mánudaginn 16. mars nk. í golfskálanum og hefst kl. 19.30.  Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta, bæði nýir félagar og aðrir, en m.a. verða ræddar fyrirhugaðar aðgerðir til þess að flýta leik á vellinum í sumar.

Sjá eldri frétt með því að smella hér