Arnar fór holu í höggi í dag

Nesklúbburinn

Arnar Friðriksson, félagi í Nesklúbbnum og formaður vallarnefndar klúbbsins fór holu í höggi á 2. braut á Nesvellinum í dag.  Arnar notaði 9 járn við höggið og sagði hann það afar vel hitt og leit allan tímann vel út þó svo hann hafi ekki séð boltann akkúrat þegar hann datt í holuna.  Þetta var í fyrsta skipti sem Arnar fer holu í höggi og óskar klúbburinn honum að sjálfsögðu til hamingju með afrekið.