Bændaglíman á laugardaginn – skráning hafin

Nesklúbburinn

Bændaglíma Nesklúbbsins verður haldin laugardaginn 28. september.  Bændaglíman er síðasta mót sumarsins og eru allir félagsmenn hvattir til að mæta.  

Bændur í ár verða hjónin Örn Baldursson og Kristín Erna Gísladóttir og má því búast við mikilli keppni og skemmtilegum degi.  Í mótslok verður svo sameigninlegur matur – sá síðasti í ár hjá Krissa þar sem skálinn lokar eftir laugardaginn fyrir veturinn.

Dagskrá: 

Bændur munu með aðstoð kappleikjanefndar skipta þátttakendum í tvö lið. það verður dregið saman úr 3 forgjafarflokkum til þess að sem jafnast verði i liðunum.  4 verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði)Texasscramble holukeppni með fullri leikforgjöf.

1. Ræst verður út af öllum teigum stundvíslega kl. 13.00.
2. Leiknar verða 18 holur með forgjöf og það lið (bóndi) sem vinnur fleiri sigra samanlagt sigrar.
3. Allir leikmenn slá alltaf upphafshögg af teig.
4. Betra upphafshöggið er valið og þaðan slá báðir keppendur.  Sá leikmaður sem að á boltann þarf alltaf að slá fyrst.  Sá leikmaður sem að ekki á boltann sem að valinn er má stilla sínum bolta upp ca. 1 feti frá boltanum sem að valinn var, þó ekki nær holu.
5. Sömu leikreglur gilda á flötum.
6. Aldurstakmark er 18 ár.  
7. Liðið sem tapar bregður sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið.  

Þátttökugjald: kr. 3.500.- pr.mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur.

Matseðill: Grillað lambalæri með bökuðum kartöflum, Bernaise sósu og fersku salati.

SKRÁNING FER FRAM Á NKGOLF@NKGOLF.IS EÐA Í SÍMA 561-1930 OG LÝKUR FÖSTUDAGINN 27. SEPTEMBER KL. 18.00

MÆTUM ÖLL OG KVEÐJUM TÍMABILIÐ MEÐ STÆL