Bændaglíman á laugardaginn

Nesklúbburinn Almennt

BÆNDAGLÍMA Nesklúbbsins 2011 verður haldin Laugardaginn 24. september

Bændur verða núverandi og fyrrverandi formaður kvennanefndar, þær

Þuríður Halldórsdóttir og Áslaug Einarsdóttir

Þær munu með aðstoð kappleikjanefndar skipta þátttakendum í tvö lið. það verður dregið saman úr 3 forgjafarflokkum til þess að sem jafnast verði i liðunum.  4 verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði) Texas scramble – holukeppni.

1. Ræst verður út af öllum teigum stundvíslega kl. 13.00.

2. Leiknar verða 18 holur með forgjöf og það lið (bóndi) sem vinnur fleiri sigra samanlagt sigrar.

3. Allir leikmenn slá alltaf upphafshögg af teig.

4. Betra upphafshöggið er valið og þaðan slá báðir keppendur.  Sá leikmaður sem að á boltann þarf alltaf að slá fyrst.  Sá leikmaður sem að ekki á boltann sem að valinn er má stilla sínum bolta upp ca. 1 feti frá boltanum sem að valinn var, þó ekki nær holu.

5. Sömu leikreglur gilda á flötum.

6. Aldurstakmark er 18 ár.   

7. Liðið sem tapar bregður sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið.  

Þátttökugjald: kr. 3.000.- pr.mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur.

Matseðill: Fylltar svínalundir með gratínkartöflum, fersku salati og rauðvínssósu.

SKRÁNING FER FRAM Á GOLF.IS EÐA Í SÍMA 561-1930 OG LÝKUR FÖSTUDAGINN 23. SEPTEMBER KL. 18.00

MÆTUM ÖLL OG KVEÐJUM TÍMABILIÐ MEÐ STÆL