Birkir Már ráðinn nýr vallarstjóri

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Birkir Már Birgisson var á dögunum ráðinn nýr vallarstjóri hjá Nesklúbbnum.  Birkir Már útskrifaðist frá Elmwood College í Skotlandi árið 2000 þar sem hann nam grasvallarfræðin.  Hann er hokinn af reynslu í  umsjá golfvalla hér á landi og kemur til okkar frá Kiðjabergi þar sem hann hefur verið Framkvæmda- og vallarstjóri undanfarin þrjú ár við góðan orðstír.   Þar áður hefur hann unnið á nokkrum völlum hér á landi, en lengst af sem vallarstjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Nesklúbburinn  býður Birki hjartanlega velkominn til starfa og í Nesklúbbsfjölskylduna og mun hann hefja störf hjá okkur þann 1. febrúar næstkomandi.

Meðfylgjandi mynd er af Birki Má og Þorsteini Guðjónssyni formanni Nesklúbbsins sem tekin var við undirritun starfssamning Birkis í síðustu viku.