Kæru félagsmenn,
Í ljósi allra frétta frá embætti sóttvarnalæknis undanfarið finnst okkur nú tilefni til þess að sýna ábyrgð. Við ætlum því að breyta örlítið uppsetningu vallarins í dag sem mun ná til næstu daga. Við viljum að sjálfsögðu öll geta haldið áfram að njóta alls hins besta á vellinum okkar og í klúbbhúsinu. Svo það gangi upp áfallalaust þurfum við sameiginlega að huga að öllum sóttvörnum á svæðinu og því verða:
* Holubotnarnir hækkaðir aftur eins og var fyrr í vor
* Allar hrífur fjarlægðar úr glompum
* Sóttvarnarbrúsar verða settir upp á öllum teigum um helgina
Allt annað verður óbreytt og munum bara öll að fara varlega og njótum sumarsins
Staðarreglum verður breytt í samræmi við ofangreint.
Stjórnin