Draumhringurinn í dag – úrslit

Nesklúbburinn

Síðasta hefðbundna golfmót sumarsins, Draumahringurinn – Eclectic fór fram í hálfgerðum sudda en samt ágætis veðri á Nesvellinum í dag.  Draumahringurinn er mót sem er í gangi yfir allt sumarið þar sem besta skor hvers kylfings á hverri holu, í fyrirframákveðnum mótum, safnast saman í hinn eina sanna draumahring (sjá nánar á forsíðu nkgolf undir draumahringurinn).  Í dag var svo síðasti möguleiki kylfinga á að bæta sig á einhverjum holum og þar með að reyna að sigra sinn forgjafarflokk.  

Í mótinu sjálfu í dag var einnig leikin punktakeppni og var í mótslok verðlaunaafhending þar sem veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin í mótinu í dag ásamt fyrir sigur í hverjum forgjafarflokki fyrir sig í draumahringnum.

Helstu úrslit í mótinu í dag voru eftirfarandi:

Nándarverðlaun:

2./11. hola – Guðmundur Örn Árnason, 97,5 cm frá holu
5./14. hola – Bjarni Rögnvaldsson, 3,73 metrar frá holu

Punktakeppni:

1. sæti – Sigurður Egilsson, 38 punktar
2. sæti – Björn Jónsson – 38 punktar
3. sæti – Laufey Hafsteinsdóttir – 37 punktar
4. sæti – Bjargey Aðalsteinsdóttir – 36 punktar
5. sæti – Róbert Vincent Tómasson – 36 punktar

Úrslit í forgjafarflokkum draumahringsins urðu eftirfarandi:

Forgjafarflokkur I – Oddur Óli Jónasson, 56 högg
Forgjafarflokkur II – Eiður Ísak Broddason, 59 hög
Forgjafarflokkur III – Sindri Már Friðriksson, 67 högg
Forgjafarflokkur IV – Aðalsteinn Jónsson, 69 högg
Forgjafarflokkur V – Gunnar Lúðvíksson, 84 högg