ECCO mótið á laugardaginn

Nesklúbburinn

Nú er fyrsta alvöru mót sumarsins á laugdardaginn þegar forkeppnin í ECCO bikarinn fer fram.  Skráning fór eingöngu fram skriflega í gegnum bókina góðu eins og áður hefur komið fram.  Það er fullt í mótið og langur biðlisti.

Fyrir keppendur í mótinu:  Nú ætlum við að prufa Golfbox kerfið alla leið og er mikilvægt að þátttakendur hafi eftirfarandi til hliðsjónar:

1. Í fyrramálið, fá allir þátttakendur tölvupóst þar sem þeir þurfa að staðfesta þátttöku sína í mótinu.  Þetta gerum við til prufu og verður engum hent út ef hann gerir það ekki.  Hinsvegar verða allar afskráningar teknar gildar.

2. Rástímar verða gefnir út á heimasíðu klúbbsins og í Golfbox kl. 13.00 á morgun.  Það eiga að vera sömu rástímar og fólk skráði sig á í bókinni.

3. Skráning á skori.  Það fá allir þátttakendur tölvupóst eftir hádegi á morgun með slóð („link“).  Þegar þið byrjið að spila í mótinu takið þið símann með ykkur og skráið skorið í mótinu í símann í gegnum þennan link.  Ath. nóg er að einn í hverju holli taki það að sér en að sjálfsögðu geta allir gert það.  

4. Við munum í þessu fyrsta móti biðja ykkur um að fylla út skorkort líka.  Skorið í símanum mun telja en við tökum þetta öryggisatriði ef eitthvað skyldi klikka.

5. Á meðan að mótinu stendur mun Live skor varpast á sjónvarpsskjáinn í skálanum og eins geta keppendur fylgst með stöðunni í mótinu í símanum.

Við biðjum ykkur að taka þátt í þessu með okkur á meðan að við erum að læra á kerfið.  Það mun gera allt mótahald bæði auðveldara og flottara í framtíðinni.

Mótanefnd