Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 19. skipti á Nesvellinum mánudaginn 3. ágúst nk. Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu BUGL (barna og unglingageðdeild Landspítalans).
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.
DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða. Í ár er það BUGL, barna og unglingadeild Landspítalans, sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en BUGL sérhæfir sig í greiningu og meðferð á geðröskunum barna og unglinga með það að leiðarljósi að stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og fjölskyldna þeirra.
Þátttakendur 2015
Aron Snær Júlíusson GKG Klúbbmeistari GKG 2015
Birgir Leifur Hafþórsson GKG Atvinnumaður og margfaldur Íslandsmeistari
Björgvin Sigurbergsson GK Margfaldur Íslandsmeistari
Helga Kristín Einarsdóttir NK Klúbbmeistari NK 2015
Hlynur Geir Hjartarson GOS Klúbbmeistari GOS 2015
Ólafur Björn Loftsson GKG Atvinnumaður og klúbbmeistari NK 2015
Ragnhildur Sigurðardóttir GR Klúbbmeistari GR 2015
Signý Arnórsdóttir GK Íslandsmeistari í höggleik 2015
Stefán Már Stefánsson GR Klúbbmeistari GR 2015
Þórður Rafn Gissurarson GR Íslandsmeistari í höggleik 2015
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson