Einvígið á Nesinu fer fram á mánudaginn

Nesklúbburinn

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 19. skipti á Nesvellinum mánudaginn 3. ágúst nk.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu BUGL (barna og unglingageðdeild Landspítalans). 

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið  (shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu. 

DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða.  Í ár er það BUGL, barna og unglingadeild Landspítalans, sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en BUGL sérhæfir sig í greiningu og meðferð á geðröskunum barna og unglinga með það að leiðarljósi að stuðla að auknum lífsgæðum þeirra og fjölskyldna þeirra. 

Þátttakendur 2015

Aron Snær Júlíusson                    GKG      Klúbbmeistari GKG 2015
Birgir Leifur Hafþórsson              GKG      Atvinnumaður og margfaldur Íslandsmeistari 
Björgvin Sigurbergsson               GK        Margfaldur Íslandsmeistari
Helga Kristín Einarsdóttir           NK          Klúbbmeistari NK 2015
Hlynur Geir Hjartarson                GOS       Klúbbmeistari GOS 2015
Ólafur Björn Loftsson                   GKG      Atvinnumaður og klúbbmeistari NK 2015
Ragnhildur Sigurðardóttir           GR          Klúbbmeistari GR 2015
Signý Arnórsdóttir                         GK          Íslandsmeistari í höggleik 2015
Stefán Már Stefánsson                GR          Klúbbmeistari GR 2015
Þórður Rafn Gissurarson             GR          Íslandsmeistari í höggleik 2015

Sigurvegarar frá upphafi

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson