Einvígið á Nesinu – shoot-out verður haldið á mánudaginn

Nesklúbburinn

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 21. skipti á Nesvellinum, mánudaginn 7. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu Vinaliðaverkefnisins sem leggur áherslu á að stöðva einelti í skólum.

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl.13.00 hefst svo Einvígið sjálft, (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 18. holu. 

DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða um hátt á annan tug milljóna króna.  Vinaliðaverkefnið nýtur í ár góðs af og fær eina milljón króna frá DHL.

Þátttakendur 2017

Birgir Björn Magnússon, GK – Klúbbmeistari GK 2017
Björgvin Sigurbergsson, GK -Margfaldur Íslandsmeistari í golfi
Björgvin Þorsteinsson, GA – Íslandsmeistari 35 ára og eldri 2017
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS –  Klúbbmeistari GS 2017
Ingvar Andri Magnússon, GR – Íslandsmeistari 17-18 ára 2017
Kristján Þór Einarsson, GM – Klúbbmeistari GM 2017
Oddur Óli Jónasson, NK – Klúbbmeistari NK 2017 og sigurvegari Einvígisins 2016
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Landsliðskona og meðlimur í TEAM ICELAND
Úlfar Jónsson, GKG  –  Margfaldur Íslandsmeistari í golfi
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL – Íslandsmeistari 2017 og atvinnukylfingur

Sigurvegarar frá upphafi

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015      Aron Snær Júlíusson
2016       Oddur Óli Jónasson