Ólafía Þórunn bætist í hóp frábærra kylfinga í Einvíginu á Nesinu

Nesklúbburinn

 

Eins og fram hefur komið verður Einvígið á Nesinu (shoot-out) haldið á Nesvellinum á mánudaginn.  Það er nú ljóst að okkar fremstu atvinnukylfingarnir í kvennaflokki, þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir verða báðar á meðal þátttakenda.  Gera má því ráð fyrir frábærri skemmtun á Nesvellinum þegar 11 af bestu kylfingum landsins etja kappi til styrktar vinaliðaverkefninu sem leggur áherslu á að stöðva einelti í skólum.  Einvígið sjálft hefst kl. 13.00 og eru að sjálfsögðu allir velkomnir á Nesvöllinn.

Þátttakendur verða eftirfarandi:

Birgir Björn Magnússon, GK – Klúbbmeistari GK 2017
Björgvin Sigurbergsson, GK – Margfaldur Íslandsmeistari í golfi
Björgvin Þorsteinsson, GA – Íslandsmeistari 35 ára og eldri 2017
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS – Klúbbmeistari GS 2017
Ingvar Andri Magnússon, GR – Íslandsmeistari 17-18 ára 2017
Kristján Þór Einarsson, GM – Klúbbmeistari GM 2017
Oddur Óli Jónasson, NK – Klúbbmeistari NK 2017 og sigurvegari Einvígisins 2016
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR – atvinnukylfingur
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Landsliðskona og meðlimur í TEAM ICELAND
Úlfar Jónsson, GKG – Margfaldur Íslandsmeistari í golfi
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL – Íslandsmeistari 2017 og atvinnukylfingur