Einvígið á Nesinu verður haldið á mánudaginn

Nesklúbburinn

EINVÍGIÐ Á NESINU – TIL STYRKTAR BARNASPÍTALA HRINGSINS

Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out) verður nú haldið í 22. sinn á Nesvellinum mánudaginn 6. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár leika í þágu „Barnaspítala Hringsins“.  Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri þar sem í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst Einvigið sjálft (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn.

Einvígið á Nesinu var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma hefur Nesklúbburinn komið að því að styrkja félög og samtök sem láta sér hag barna varða um rúmlega tuttugu milljónir króna.

Í ár ætlar Nesklúbburinn fyrir tilstuðlan velunnara að gefa til Barnaspítalans Hringsins kr. 500.000 í þeirra þarfa verkefni.  Mótið verður tekið upp og sýnt í sjónvarpi Símans skömmu síðar.

Þátttakendur í Einvíginu 2018

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG – Klúbbmeistari GKG 2018
Björgvin Sigurbergsson, GK – Margfaldur Íslandsmeistari
Björn Óskar Guðjónsson GM –  Landsliðsmaður í golfi og 2. sæti á Íslandsmótinu í höggleik 2018
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR – Klúbbmeistari GR 2018 og Íslandsmeistari drengja 15-16 ára
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS – Klúbbmeistari GS 2018
Kristján Þór Einarsson, GM – Klúbbmeistari GM 2018 og sigurvegari Einvígisins 2017
Ólafur Björn Loftsson, NK- Klúbbmeistari Nesklúbbsins 2018 og atvinnukylfingur
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Landsliðskona í golfi og Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2018
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR – Klúbbmeistari GR 2018 og margfaldur Íslandsmeistari
Rúnar Arnórsson, GK – Landsliðsmaður í golfi og Íslandsmeistari karla í holukeppni 2018

Sigurvegarar frá upphafi:

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015      Aron Snær Júlíusson
2016      Oddur Óli Jónasson
2017      Kristján Þór Einarsson