Firmakeppni Nesklúbbsins 27. ágúst

Nesklúbburinn

Laugardaginn 27. ágúst fer hin stórskemmtilega Firmakeppni Nesklúbbsins fram á Nesvellinum. 

Leiknar verða 18 holur eftir Greensome fyrirkomulagi þar sem tveir leika saman í liði og verður ræst út af öllum teigum samtímis kl. 09.00

Hefðinni samkvæmt verður svo verðlaunaafhending og hangikjöt og uppstúf með öllu tilheyrandi að leik loknum.

Verð pr. fyrirtæki kr. 40.000

Takmarkaður þátttakendafjöldi, fyrstur kemur – fyrstur fær.

Skráning hafin á nkgolf@nkgolf.is eða í síma 860-1358