Fjórði dagur meistaramóts fór vel af stað í morgun í blíðskaparveðri en logn og blíða tók á móti keppendum. Um miðjan morgun kom hressileg demba sem var sannarlega þörf á og tóku allir henni fagnandi og létu ekki hafa áhrfi á spilamennskuna.
Úrslit réðust í unglingaflokki drengja 14 ára og yngri en þar hafði Gunnar Geir Baldursson sigur en hann var í forystu alla dagana. Gunnar Geir spilaði jafnt og gott golf og vann að lokum með 13 högga mun. Glæsilegt hjá Gunnari.
Drengir 15 – 18 ára
Eiður Ísak Broddason er efstur eftir fyrsta hring í flokki drengja 15-18 ára. Eiður Ísak spilaði á 76 höggum og er með sex högga forskot á Eggert Rafn Sighvatsson. Sigurður Örn Einarsson er þriðji, tveimur höggum lakari en Eggert, en Sigurður spilaði á 84 höggum.
Staða |
Kylfingur |
Fgj. |
Dagar |
Alls |
||||||||
D1 |
D2 |
D3 |
D4 |
Alls |
Mismunur |
|||||||
1 |
Eiður Ísak Broddason |
6 |
76 |
76 |
4 |
|||||||
2 |
Eggert Rafn Sighvatsson |
5 |
82 |
82 |
10 |
|||||||
3 |
Sigurður Örn Einarsson |
16 |
84 |
84 |
12 |
|||||||
4 |
Bjarni Rögnvaldsson |
17 |
90 |
90 |
18 |
|||||||
5 |
Egill Snær Birgisson |
15 |
94 |
94 |
22 |
|||||||
6 |
Arnar Þór Helgason |
17 |
94 |
94 |
22 |
Drengir 14 ára og yngri – úrslit
Eins og áður sagði þá bar Gunnar Geir Baldursson sigur úr býtum í flokki 14 ára og yngri eftir að hafa spilað frábært golf alla dagana. Gunnar Geir lék hringina á 81, 81 og 82 höggum, samtals á 244 höggum. Dagur Logi Jónsson varð annar á 257 höggum samtals og tveimur höggum á eftir Degi og í þriðja sæti varð Sindri Már Friðriksson á 259 höggum samtals.
Staða |
Kylfingur |
Fgj. |
Dagar |
Alls |
||||||||
D1 |
D2 |
D3 |
Alls |
Mismunur |
||||||||
1 |
Gunnar Geir Baldursson |
12 |
81 |
81 |
82 |
244 |
28 |
|||||
2 |
Dagur Logi Jónsson |
8 |
82 |
89 |
86 |
257 |
41 |
|||||
3 |
Sindri Már Friðriksson |
8 |
90 |
85 |
84 |
259 |
43 |
1. flokkur kvenna
Sigrún Edda Jónsdóttir er með forystu í fyrsta flokki kvenna eftir fyrsta hring, en hún spilaði frábært golf í dag. Sigrún Edda spilaði á 81 höggi sem skilaði henni 42 punktum – glæsilegur hringur. Erla Ýr Kristjánsdóttir er önnur á 90 höggum og jafnar í þriðja til fimmta sæti eru Oddný Rósa Halldórsdóttir, Jónína Birna Sigmarsdóttir og Jórunn Þóra Sigurðardóttir, allar á 93 höggum.
Staða |
Kylfingur |
Fgj. |
Dagar |
Alls |
||||||||
D1 |
D2 |
D3 |
D4 |
Alls |
Mismunur |
|||||||
1 |
Sigrún Edda Jónsdóttir |
15 |
81 |
81 |
9 |
|||||||
2 |
Erla Ýr Kristjánsdóttir |
20 |
90 |
90 |
18 |
|||||||
3 |
Oddný Rósa Halldórsdóttir |
17 |
93 |
93 |
21 |
|||||||
4 |
Jónína Birna Sigmarsdóttir |
17 |
93 |
93 |
21 |
|||||||
5 |
Jórunn Þóra Sigurðardóttir |
20 |
93 |
93 |
21 |