Flatirnar gataðar í dag

Nesklúbburinn

Í morgun hófst framkvæmd við að gata allar flatir á vellinum.  Ástæður fyrir götun eru nokkrar en fyrst og fremst er það til að losa um þjöppun í jarðveginum.  Þá eykst loftflæði í jarðveginum sem ýtir undir dýpri og betri rótarvöxt, vatnsflæði frá yfirborði til róta eykst og minni líkur verða á því að vatn safnist saman á yfirborði flata yfir veturinn og frjósi.  Með auknu loftrými og auknu vatnsflæði neðar í rótarkerfið styrkjast þær grastegundir sem gera flatirnar góðar og henta þannig betur til golfleiks.  Sérstaklega stórir tappar verða notaðir á 8. og 9. flötunum en þær þurfa nauðsynlega á lagfæringu að halda eins og margir hafa tekið eftir þegar líða tók á sumarið.

Eins og gefur að skilja mun þetta óhjákvæmilega hafa töluverða röskun í för með sér á meðan framkvæmdinni stendur og eru kylfingar beðnir um að sýna því skilning.  Til skamms tíma gerir þetta flatirnar ekki jafn góðar og þær eiga að sér að vera, en til framtíðar litið er þetta nauðsynleg framkvæmd.