Bændaglíman 2015, breytt dagsetning – kveðjum tímabilið saman

Nesklúbburinn

Bændaglíma Nesklúbbsins verður haldin laugardaginn 3. október.  Bændaglíman er síðasta mót sumarsins og eru allir félagsmenn hvattir til þess að mæta og kveðja tímabilið með stæl.

Bændur í ár verða annarsvegar fyrirliði öldungasveitar kvenna og hinsvegar margfaldur klúbbmeistari Nesklúbbsins í kvennaflokki, þær
Ágústa Dúa Jónsdóttir og Karlotta Einarsdóttir.  Undanfarin ár hefur Ágústa náð frábærum árangri bæði sem liðsstjóri og leikmaður með kvennasveitum Nesklúbbsins.  Karlotta á á annan tug titla sem klúbbmeistari Nesklúbbsins og má því búast við góðri keppni og skemmtilegum degi.  Í mótslok verður svo sameiginlegur matur, sá síðasti þetta árið þar sem skálinn lokar formlega eftir þennan dag.

Dagskrá:

Bændur munu með aðstoð mótsstjórnar skipta þátttakendum í tvö lið.  4 verða saman í holli og verður leikið tveggja manna (tveir í hvoru liði) Texas-scramble holukeppni með fullri leikforgjöf.

1. Ræst verður út af öllum teigum stundvíslega kl. 13.00.
2. Leiknar verða 18 holur með forgjöf og það lið (bóndi) sem vinnur fleiri sigra samanlagt sigrar.
3. Allir leikmenn slá alltaf upphafshögg af teig.
4. Betra upphafshöggið er valið og þaðan slá báðir keppendur.  Sá leikmaður sem að á boltann þarf alltaf að slá fyrst.  Sá leikmaður sem að ekki á boltann sem að valinn er má stilla sínum bolta upp ca. 1 feti frá boltanum sem að valinn var, þó ekki nær holu.
5. Sömu leikreglur gilda á flötum.
6. Aldurstakmark er 18 ár.   
7. Liðið sem tapar bregður sér í stutt þjónustuhlutverk í veislunni á eftir sem að hefst strax og leik er lokið.

Þátttökugjald aðeins kr. 4.500 pr. mann og er innifalið í verði bæði mótsgjald og matur

Matseðill: Grillað lambalæri með bökuðum kartöflum, bernaise sósu og fersku salati.

ATH. Skráning fer nú fram á golf.is og lýkur fimmtudaginn 1. október.  Skráningin mun ekki gefa rétta mynd af ráshópum þar sem að liðsstjórar munu velja í lið og er því eingöngu til að skrá kylfinga til leiks.

ATH: ÞETTA ER MÓT FYRIR ALLA FÉLAGSMENN OG BARA GAMAN,  MÆTUM ÞVÍ ÖLL OG KVEÐJUM TÍMABILIÐ SAMAN MEÐ STÆL