Völlurinn:
Nú er verið að búa völlinn undir vetrarbúning og verður fært yfir á vetrarflatir um leið og veður gefur tilefni til. Félagsmenn eru beðnir um að virða það og leika alls ekki inn á sumarflatir né af sumarteigum þegar vellinum hefur verið breytt. Eins og áður hefur komið fram er völlurinn eingöngu opinn fyrir félagsmenn.
Aðgangur að salernum:
Nú er búið að virkja aðgang félagsmanna að salernisaðstöðu óháð því hvort að skálinn sé opinn eða ekki. Þeir félagsmenn sem hafa í hyggju að nýta sér það þurfa að koma við á skrifstofu klúbbsins og virkja félagsskírteinið sitt fyrir aðgang. Hægt er að koma við á skrifstofunni alla næstu viku á milli kl. 11.00 og 15.00. Þá má minna félagsmenn á það sem áður hefur verið tilkynnt, þ.e. að félagsskírteinin sem voru gefin út í vor eru til næstu ára og því má alls ekki henda þeim.
Veitingasala:
Eins og tilkynnt var í síðasta mánuði verða breytingar á rekstri veitingasölunnar fyrir næsta ár. Leit er nú hafin að nýjum aðila og fyrir fyrirspurnir eða ábendingar má hafa samband við skrifstofu klúbbsins í síma: 561-1930 eða á nkgolf@nkgolf.is
Starfsmannamál:
Haukur Jónsson, vallarstjóri Nesklúbbsins undanfarin ár hefur látið af störfum hjá klúbbnum. Eru honum þökkuð vel unnin störf og honum óskað alls hins besta á nýjum vettvangi. Stjórn klúbbsins hefur hafið vinnu við að ráða nýjan vallarstjóra.
Inniaðstaða:
Risið, inniaðstaða Nesklúbbsins á Eiðistorgi mun opna núna mánudaginn og verður fyrst um sinn opið á virkum dögum á milli kl. 13.00 og 20.00. Þeir sem vilja bóka tíma í golfherminum er bent á að gera það í síma: 561-1910 á ofangreindum tíma. Athugið að hægt er að bóka tíma í herminn utan hefðbundins opnunartíma og þá eingöngu í gegnum Hjalta í sama símanúmer.
Aðalfundur 2018
Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Neskúbbsins verður haldinn fimmtudaginn 29. nóvember nk. Það verður allt tilkynnt nánar þegar nær dregur.