Fyrsta kvennamótið á morgun

Nesklúbburinn

Fyrsta þriðjudagsmótið fyrir NKkonur verður á morgun, þriðjudaginn 14. maí. 

Fyrirkomulagið er það sama og venjulega, bara mæta og skrá sig í kassann góða í veitingasölunni áður en leikur hefst og greiða í hann 1.000kr. (með seðlum).  Svo bara muna að skila kortinu sínu undirrituðu í kassann aftur að hring loknum.

Við ætlum aðeins að krydda fyrirkomulag verðlauna og gefa verðlaun fyrir 1., 4. og 8. sætið fyrir 9 og 18 holur. Þetta er punktakeppni

Vonumst til að sjá sem flestar á morgun,

Kvennanefnd