Gauti Grétarsson Íslandsmeistari í dag

Nesklúbburinn

Nesklúbburinn eignaðist í dag Íslandsmeistara í golfi.  Undanfarna daga hefur Íslandsmót eldri kylfinga verið haldið í Vestmannaeyjum þar sem leiknar voru 54 holu höggleikur í nokkrum flokkum.  Í karlaflokki 55+ sigraði Gauti Grétarsson úr Nesklúbbnum eftir æsispennandi baráttu við Sigurð Hafsteinsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur.  Gauti lék holurnar 54 á 221 höggi eða 11 höggum yfir pari og sigraði með tveggja högga mun.  Nesklúbburinn óskar Gauta innilega til hamingju með árangurinn.