Í framhaldi af tilkynningu Heilbrigðisráðuneytisins verða hrífurnar settar aftur í glompurnar á morgun, fimmtudag og þær settar í leik. Einnig verða svamparnir sem verið hafa í holubotnunum fjarlægðir.
Það hefur sýnt sig að nokkrar aðgerðir í vor hafa aukið til muna leikhraða á vellinum, þ.m.t. að hafa stöngina í holunni. Við hvetjum því kylfinga til að nýta sér áfram þann möguleika að hafa stöngina í eins og golfreglurnar heimila, en er þó ekki skylda.
Staðarreglum vallarins verður breytt í samræmi við ofangreint.