OPNA NESSKIP á mánudaginn

Nesklúbburinn

Annan i hvítasunnu sem er næstkomandi mánudagur, 1. júní, verður OPNA NESSKIP mótið haldið á Nesvellinum þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins.

OPNA NESSKIP er 18 holu golfmót þar sem leikið verður eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Einnig verða nándarverðlaun á par 3 holum.

Mótið er opið öllum kylfingum sem eru meðlimir í GSÍ.

Hámarksforgjöf gefin: 28.

VERÐLAUN:

PUNKTAKEPPNI

1. sæti: 30.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2020
2. sæti: 20.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2020
3. sæti: 15.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2020

BESTA SKOR:

1. 30.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2020

NÁNDARVERÐLAUN:

2./11. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2020 
5./14. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2020

Teiggjöf: Kassi af sportþrennu frá Lýsi

Skráning fer eingöngu fram í golfskálanum og er hægt að hringja í síma: 561-1930 eða mæta á svæðið og skrá sig.

ATH: NAUÐSYNLEGT ER AÐ GEFA UPP AÐILDARNÚMER VIÐ SKRÁNINGU.  Aðildarnúmer þitt er t.d. (6-1234) þar sem „6“ er númerið á klúbbnum sem þú ert í og „1234“ er alildarnúmer þitt innan viðkomandi klúbbs.

Skráning hefst þriðjudaginn 26. maí kl. 13.00 og stendur til sunnudagsins 31. maí kl. 16.00

Þátttökugjald kr. 3.900