Góð þátttaka í Meistaramótinu 2017

Nesklúbburinn

Skráningu í Meistaramótið 2017 lauk nú í kvöld á slaginu 22.00.  Eftir rólega skráningu framan af rættist heldur betur úr og fór svo að heildarfjöldinn fór í 182 eða tæplega 25% félagsmanna Nesklúbbsins sem er virkilega gott.

Framundan er því stórskemmtilegt Meistaramót, veðurspáin er góð og völlurinn hefur líklega sjaldan verið betri.

Á morgun föstudag, mun eftir hádegið verða sett fram ný og uppfærð rástímatafla sem tekur mið af skráningu í mótið og fjölda þátttakenda í hverjum flokki.  Seinnipartinn munu svo rástímar fyrir fyrsta keppnisdag, laugardaginn 1. júlí verða birtir hér á heimasíðunni og á golf.is

Megi öllum keppendum ganga sem best og góða skemmtun

Mótsstjórn