Golfleikjanámskeiðin hefjast á mánudaginn

Nesklúbburinn

Eins og undanfarin ár býður Nesklúbburinn upp á hin geysivinsælu golfleikjanámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-13 ára, óháð því hvort að þau séu í klúbbnum eða ekki. Markmiðið með námskeiðunum er að kenna undirstöðuatriðin í golfleik, framkomu og umgengni á golfvelli.

Það eru nokkur pláss laus á öll námskeiðin, fyrstu kemur fyrstur fær.  Skráning fer fram í golfskálanum í síma: 561-1930.

Yfirumsjón með námskeiðunum er í höndum þeirra Nökkva Gunnarssonar golfkennara og Matthildar Maríu Rafnsdóttur.  Ásamt þeim munu nokkrir af afrekskylfingum klúbbsins leiðbeina krökkunum á námskeiðunum.

Námskeið 2018

Námskeið 1. 4. – 8. júní kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)*
Námskeið 2. 11. – 15. júní kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 3. 18. – 22. júní kl. 09.00 – 12.00 (strákar og stelpur)
Námskeið 4. stúlknanámskeið 25. – 29. júní kl. 09.00 – 12.00**
Námskeið 5. 9. – 13. júlí (strákar og stelpur)

Aldurstakmark er 8 ár og verð pr. námskeið kr. 14.000.-

* Fyrstu tveir dagarnir á námskeiði nr. 1 verða á milli kl. 12.30 og 15.30.
** Ef ekki næst næg þátttaka stelpna verður námskeiðið blandað stelpum og strákum en þó þannig að þeim verður skipt upp í hópa eftir kynjum á námskeiðinu. 

Innifalið í gjaldinu er nestispakki sem inniheldur hvern dag:
Rúnstykki með skinku og osti, svali og ávextir.