Golfnámskeið á nýju ári
Uppúr miðjum janúar fara af stað 10 vikna (1 x í viku) námskeið í Risinu á Eiðistorgi. Námskeiðin eru bæði hugsuð fyrir styttra komna og einnig fyrir vanari kylfinga. Hver æfingatími er ein klukkustund og eru tímarnir að mestu byggðir upp á stöðvaþjálfun. Markmið námskeiðanna er að vinna í öllum þáttum golfleiksins bæði í Trackman golfhermum og á æfingaflötinni í Risinu. Steinn Baugur Gunnarsson golfkennari mun sjá um þjálfunina. Námskeiðin eru frábært tækifæri til þess að undirbúa sig fyrir nýtt golftímabil með því að vinna í sveiflunni og skerpa á stutta spilinu á nýju ári .
Golfnámskeið fyrir heldri kylfinga líkt og þau sem hafa verið í gangi í haust verða áfram í boði fyrir hádegi virka daga frá kl 9-10 mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Einnig verða almenn námskeið í boði á laugardögum frá kl 10-11 og frá 11-12
Þáttökugjald á 10 vikna námskeið 1 x í viku er 40.000kr
Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu veitir Steinn golfkennari á netfanginu steinngunnars@gmail.com eða í síma 823-7606