Golfnámskeið

Nesklúbburinn

Enn eru nokkur pláss laus á námskeið sem byrja í næstu viku.

Námskeiðstímar sem enn er hægt er að skrá sig á eru á miðvikudögum frá kl 9-10 og á laugardögum frá kl 10-11 og 11-12

Um er að ræða 10 vikna (1 x í viku) námskeið í Risinu á Eiðistorgi. Námskeiðin eru bæði hugsuð fyrir styttra komna og einnig fyrir vanari kylfinga. Hver æfingatími er ein klukkustund og eru tímarnir að mestu byggðir upp á stöðvaþjálfun. Markmið námskeiðanna er að vinna í öllum þáttum golfleiksins bæði í Trackman golfhermum og á æfingaflötinni í Risinu. Steinn Baugur Gunnarsson golfkennari mun sjá um þjálfunina. Námskeiðin eru frábært tækifæri til þess að undirbúa sig fyrir nýtt golftímabil með því að vinna í sveiflunni og skerpa á stutta spilinu.

Þátttökugjald á 10 vikna námskeið 1 x í viku er 40.000kr

Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu veitir Steinn golfkennari á netfanginu steinngunnars@gmail.com