Guðmundur Ágúst sigraði Einvígið á Nesinu

Nesklúbburinn

Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í dag.  Þetta var í 23. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengt börnum, nú Barnaspítala Hringsins. 
Sigurvegari mótsins varð að lokum Guðmundur Ágúst Kristjánsson.  
Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins.  Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og Kristinn Ólafsson formaður Neskúbbsins afhenti að lokum Önnu Dagný Smith frá Barnaspítala Hringsins ávísun að upphæð 750.000 krónur.  

Úrslit í einvíginu urðu eftirfarandi:

1. sæti: Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR
2. sæti:Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
3. sæti: Nökkvi Gunnarsson, NK
4. sæti: Björgvin Sigurbergsson, GK
5. sæti: Axel Bóasson, GK
6. sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
7. sæti: Haraldur Franklín Magnús, GR
8. sæti: Ólafur Björn Loftsson, NK
9. sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
10. sæti: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR