Einvígið á Nesinu á mánudaginn

Nesklúbburinn

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í 23. skipti á Nesvellinum, mánudaginn 5. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár spila í þágu BARNASPÍTALA HRINGSINS. Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri þar sem í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga

Einvígið verður með örlítið breyttu sniði í ár.  Þannig verður enginn höggleikur um morguninn heldur mæta kylfingarnir beint í Einvígið sjálft (shoot-out) sem hefst klukkan 13.00.  Þar dettur eins og áður einn kylfingur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 9. braut. 

FRUMHERJI og KEA HÓTEL eru styrktaraðilar mótsins árið 2019.   

Þátttakendur 2019

AXEL BÓASSON
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON
BJÖRGVIN SIGURBERGSSON
GUÐMUNDUR ÁGÚST KRISTJÁNSSON
GUÐRÚN BRÁ BJÖRGVINSDÓTTIR
HARALDUR FRANKLÍN MAGNÚS
NÖKKVI GUNNARSSON
ÓLAFÍA ÞÓRUNN KRISTINSDÓTTIR
ÓLAFUR BJÖRN LOFTSSON
RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR

Sigurvegarar frá upphafi

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015       Aron Snær Júlíusson
2016       Oddur Óli Jónasson
2017       Kristján Þór Einarsson
2018       Ragnhildur Sigurðardóttir