Herra- og konukvöld Nesklúbbsins

Nesklúbburinn

Eins og undanfarin ár verða haldin herra- og konukvöld Nesklúbbsins.  Kvöldin hafa mælst ákaflega vel fyrir þar sem félagsmenn, vinir og vandamenn hafa komið saman og átt skemmtilega kvöldstund í golfskálanum yfir dýrindsmáltíð og góðum skemmtiatriðum.  Dagskrár kvöldanna verða nánar auglýstar síðar en dagsetningarnar eru eftirfarandi:

Herrakvöld: Föstudaginn 28. febrúar

Konukvöld: Föstudaginn 7. mars

Takið kvöldið frá, það er takmarkaður sætafjöldi og því eins og venjulega: fyrstir koma fyrstir fá.

Miðapantanir á netfangið: nkgolf@nkgolf.is eða í síma: 561-1930