Kæru félagsmenn,
Eftir stöðufund í morgun hefur verið ákveðið að fresta hreinsunardeginum um viku eða til 9. maí. Á þeim degi verður völlurinn opnaður fyrir þá sem taka þátt í hreinsuninni og svo að sjálfsögðu veitingasalan. Ástæðan er einfaldlega sú að völlurinn er bara ekki kominn í leikhæft ástand. Í ofan á lag er spáð næsturfrosti um helgina sem ef af verður gæti unnið á móti okkur upp á framhaldið. Við vonum það besta og munum taka stöðuna aftur á mánudaginn og þá gefa út frekari upplýsingar.
Að því sögðu að þá verðum við að taka það fram að það er stranglega bannað að leika af sumarteigum og inn á sumarflatir. Það hefur því miður sést til nokkurra félagsmanna vera að „svindla“ sér þar inn og það er gjörsamlega óásættanlegt. Það eru allir að gera sitt besta til að völlurinn muni líta sem best út þegar við opnum og það að virða ekki þessar reglur er galið og mun einfaldlega bera þess merki langt inn í sumarið. Tökum nú höndum saman í þessa daga fram að opnun og göngum um svæðið eins og til er ætlast. Þá nefninlega verður allt miklu fallegra, betra og þá um leið skemmtilegra þegar opnað verður.
Við ætlum að opna boltavélina og æfingasvæðið á föstudaginn ef allt gengur upp. Við tilkynnum það nánar þegar nær dregur.
Með golfkveðju,
Haukur
