Innheimta árgjalda 2024

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæri félagi í Nesklúbbnum,

Nú líður senn að innheimtu félagsgjalda 2024.  Félagsgjöld fyrir árið 2024 voru samþykkt samhljóða á aðalfundi klúbbsins þriðjudaginn 28. nóvember síðastliðinn og má sjá hér á heimasíðunni undir um Nesklúbbinn/gjaldskrá (smella hér)

Félagsgjöld verða eins og í undanfarin ár innheimt í gegnum vefforritið SPORTABLER.  Viljirðu ráðstafa greiðslufyrirkomulagi sínu sjálf/ur muntu þurfa að skrá þig inn á SPORTABLER og ráðstafa þínu greiðslufyrirkomulagi. Ítarlegar leiðbeiningar verða gefnar út þegar búið er að uppfæra breytingar á gjöldunum inni á Sportabler og verður það tilkynnt á heimasíðu klúbbsins og með tölvupósti þegar allt er tilbúið – þangað til þær upplýsingar berast þarftu ekki að gera neitt.

Inni á heimasíðu klúbbsins undir Um Nesklúbbinn/gjaldskrá má einnig sjá slóð fyrir almennar leiðbeiningar um Sportabler.

Í boði verður fá greiðsluseðla í heimabanka eða greiða með greiðslukorti og hægt er að skipta greiðslum niður í allt að 8 skipti.  ATH: óháð því hvaða leið þú valdir í fyrra þá þarftu að fara í gegnum ferlið aftur fyrir næsta tímabil. 

Þeir sem ekki verða búnir að ráðstafa greiðslufyrirkomulagi sínu þann 15. desember munu fá greiðsluseðla í heimabanka, skipt niður í fjórar greiðslur.

Fyrsti gjalddagi allra greiðsluleiða er 1. janúar.

Ákveði félagsmaður að hætta í klúbbnum væri heppilegasti tíminn til þess að láta vita af því núna en þó eigi síðar en 15. janúar.  Berist úrsögn eftir þann tíma fást félagsgjöld ekki endurgreidd nema gegn framvísun læknisvottorðs.  Úrsögn skal tilkynna á netfangið: nkgolf@nkgolf.is

Stjórnin